Við ákváðum að læsa síðunni en endilega sendið okkur e-mail ef ykkur langar að kíkja :) olijon@adalmalun.is
Nöfnin okkar:
Sigurður
Nafn þetta er fengið af fornháþýska nafninu "Sigwart" sem er myndað af forliðnum "Sig" sem merkir sigur og viðliðnum "wart" sem merkir vörður, verndari.
Hann var skírður Sigurður í höfuðið á Sigga afa í Kringló.
Elvar
Nafn þetta er dregið af orðinu "elfur" sem merkir á.
Einnig gæti það tengst orðinu "Álfur" í merkingunni huldumaður.
Einnig getur það verið stytting nafnsins "Elvira" frá Norðurlöndum og merkir hin hvíta.
Elvars nafnið fékk hann frá Elvu ömmu sinni í föðurætt.
Selma
Nafn þetta merkir hin fagra og er komið af örnefninu "Shelma" sem talað er um í þýsku kvæði frá 1765.
Selmu nafnið fékk hún bara af því að foreldrum finnst það svo fallegt :)
Guðrún
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.
Hún var skírð Guðrún í höfuðið á ömmusystur sinni sem tók á móti systkinunum
Sævar
Nafnið Sævar merkir farmaður eða hermaður á sæ.
Þetta nafn er ekki eftir neinum en okkur fannst það svo fallegt og passa vel við snáðann.
Óli
Þar sem hann fæddist á afmælisdegi pabba síns ákváðum við að hann fengi þetta nafn. Svo var hann náttúrulega nákvæmlega eins og hann þegar hann fæddist svo það kom eiginlega ekkert annað til greina:)
Foreldrar okkar heita Sigríður og Óli Jón. Mamma er úr Skagafirði frá sveitabæ sem heitir Kringlumýri. Pabbi er úr Árbænum. Svo á ég náttúrulega fullt af ömmum og öfum og yndislegu frændfólki...já við erum sko heppin kríli :)

Jóna Karitas frænka mín
María Hersteinsdóttir frænka mín
Óskar Smári
Ingibjörg Móa & Ástrós Saga
Gunnar Bjarki
Rósa Kristín frænka
Jón Emil frændi
Ísak Leon og Kristín Marý
Harpa Dagbjört vinkona mín
Gunnar Björn vinur minn
Skarphéðinn frændi & Herdís frænka
Jóna Guðbjörg & Agnes Brá
Bárður vinur minn
Sunna María Simunardóttir
Arnar Frank vinur minn
Ísabella Sól vinkona mín
Til þín
Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til
VATNSBERINN
20. janúar - 18. febrúar
Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.
MAMMA
Er konan sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn, fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI.
PABBI
Er maðurinn sem verður svo montinn þegar maður fæðist að mætti halda að það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrýtið að lítið barn skuli ekki geta sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt!!! Svo þegar maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er allltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI.
Uppeldi
Ef mér gæfist tækifæri til að ala barnið mitt upp aftur,
þá myndi ég mála með fingrunum
í stað þess að fetta fingur út í það.
Ég myndi leiðrétta það minna og tengjast því meira.
Ég myndi taka augun af klukkunni og horfa meira í kringum mig.
Ég myndi vilja vita minna en elska meira.
Ég myndi fara oftar í lautarferðir og fljúga fleiri flugdrekum.
Ég myndi hætta að vera svona alvarleg og leika mér af meiri alvöru.
Ég myndi hlaupa á fleiri engjum og horfa á fleiri stjörnur.
Ég myndi faðma meira og skamma minna.
Ég myndi vera minna staðföst, en staðfesta kosti þess meira.
Ég myndi byggja upp sjálfstraust þess fyrst, en síðan húsið.
Ég myndi kenna því minna um sókn í völd en meira um sókn í ást.
Móðurást!
Lítill strákur kom til mömmu sinnar
þegar hún var að taka til kvöldmatinn.
Hann rétti henni miða sem hann hafði
verið að skrifa á.
Mamman þurrkaði sér um hendurnar
og las það sem stóð:
Fyrir að slá blettinn = 500 kr
Fyrir að búa um rúmið mitt
þessa vikuna = 100 kr
Fyrir að fara í búðina = 50 kr
Fyrir að leika við litla bróður minn
á meðan þú fórst í búðina = 25 kr
Fyrir að fara út með ruslið = 100 kr
Fyrir að fá góðar einkunnir = 500 kr
Fyrir að raka garðinn = 200 kr
Á meðan mamman stóð þarna og horfði á strákinn sinn
bíða spenntan eftir því að fá peninginn flugu þúsundir
minninga í gegnum huga hennar. Þannig að mamman náði
sér í penna og skrifaði hinum meginn á miðann:
Fyrir níu mánuðina
sem ég gekk með þig = 0 kr
Fyrir næturnar sem ég sat með þig,
hjúkraði þér, bað fyrir þér = 0 kr
Fyrir tímann og tárin
og kostnaðinn í gegnum árin = 0 kr
Fyrir næturnar sem ég sat andvaka
hrædd um þig og áhyggjurnar
í framtíðinni = 0 kr
Fyrir ráðin og vitneskjuna
em ég gaf þér
og skólakostnaðinn er ég greiddi = 0 kr
Fyrir dótið, matinn og fötin,
og fyrir að þurrka nebbann þinn = 0 kr
Hún sagði við son sinn, þegar þú leggur þetta allt saman
hvað það kostar mig að elska þig þá er það frítt.
Jæja strákurinn las miðann og leit á mömmu sína
með tárin í augunum og skrifaði á miðann sinn með stórum stöfum
GREITT AÐ FULLU.
